laugardagur, apríl 23, 2005

Uss hvað maður er latur

Ég veit ég er búinn að vera ekkert smá latur að blogga. Þannig séð ekkert mikið að segja frá. Maður gerir lítið annað en að vinna og svo ef maður er í smá fríi þá reynir maður bara að hitta á vinina í bænum. Skelti mér nú samt á djammið um síðustu helgi. Var hér í Keflavík á föstudeginum en það var bara svona rólegt og ég fór heim um 3 en svo á laugardeginum þá var farið á Roadhouse. Þar borgaði maður 2000 kr inn og drakk eins mikinn bjór og maður vildi á barnum. Fínasta tónlist í gangi líka þarna. Minnti smá á gamla Felix enda Svavar sem var vaktstjóri þar að sjá um tónlistina.
Já svo er börnunum alltaf að fjölga í kringum mann. Og ótrúlegasta fólk að verða foreldrar. Ég er samt ekkert að flýta mér í þessum málum er bara laus og liðugur.
Foreldrar mínir ákváðu að bjóða systu og kærastanum hennar til Íslands í nokkra daga og koma þau á miðvikudaginn. Samt vill svo "skemmtilega" til að ég hef nóg að gera um næstu helgi. Það er víst Landsmót ungra lögreglumanna í fótbolta á Stykkishólmi og ég er í liðinu fyrir mitt embætti.
Svo fer tímabilið að byrja í Utandeildinni. Held það sé mánuðir í fyrsta leik.
En já nóg af blaðri þangað til næst.....

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Lati (Ás)Geir á lækjarbakka
lá þar til hann dó
Vildi hann ekki vatnið smakka
var hann þyrstur þó.

:p hehe varð! :) Nei þú ert ekkert latur, hefur bara merkilegri hlutum að sinna en að blogga;)

2:27 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

ég trúi því ekki að þú hafir verið í hólminum, ég var þar líka.. ég klikkaði bara á djamminu :S svona er þetta, bætum þetta kannski upp síðar ;)

12:31 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

já..þú ert frekar latur við þetta,, hehe ;)

5:08 f.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home