sunnudagur, apríl 03, 2005

góð helgi en skrautleg

þetta var fín helgi og sérstaklega góður endir því liðið mitt tók lið Geirfuglana í nefið i kvöld. unnum þá 6-2. sjonni með þrennu einu sinni enn.... kominn með 10 mörk í síðustu 3 leikjum.

en já svona það skrautlega við helgina er það að ég skellti mér á djammið með herlöggunni á vellinum og það var tekið ansi hressilega á því.... fórum fyrst upp á varnarsvæði á barinn þar og fengum okkur nokkra bjóra til að hita upp. síðan var haldið á paddys en lítið stuð þar þannig við kíktum á traffic en það var ekkert af fólki þar af viti svo við skelltum okkur á casino. þar skemmtum við okkur fram á morgun.

en já svona annars er það bara að frétta af mér að ég er að vinna eins og vitleysingur og hef lítinn tíma til að sletta úr klaufunum. en já svona er þetta bara og ég ætla ekkert að hafa þetta lengra í bili læt heyra frá mér flótlega aftur ég lofa:P

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Ertu hættur að blogga eða hvað... þýðir ekkert að lofa að blogga og gera svo ekkert því... koma svo strákur, lifna við :D

6:29 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ sæti.. :)

Datt inn á síðuna þína, svo rosalega langt síðan ég hef heyrt eitthvað í ykkur öllum svo að gaman að lesa.. :) Það vantar reyndar gestabók inná síðuna.. ;) En hafðu það óendanlega gott.. :*

Kv. Díana Huld
www.blog.central.is/dinuz69

4:56 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

herðu sæti...
Koma svo! BLOGGA!! ég veit þú lifir æsispennandi lífi sem löggumaður, væri ekkert verra að fá að heyra smá ;)

1:49 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home